Vorráðstefna um menntavísindi á vegum miðstöðvar skólaþróunar HA verður haldin í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 16. apríl 2016 undir yfirskriftinni Snjallari saman. Ráðstefnan er að þessu sinni tileinkuð notkun upplýsingatækni og miðlunar í skólastarfi. Markmiðið er varpa ljósi á gildi stafrænnar tækni í skólastarfi og hvernig hægt er að nota tækninna á fjölbreyttan hátt til stuðnings námi og kennslu.
Efni ráðstefnunnar er að venju sniðið að leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Aðalfyrirlesarar:
- Kjartan Ólafsson lektor og formaður félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri
- Helena Sigurðardóttir og Margrét Þóra Einarsdóttir grunnskólakennarar í Brekkuskóla á Akureyri
- Tryggvi Thayer verkefnisstjóri Menntamiðju við Menntavísindasvið Háskóla Ísland
Auk aðalfyrirlestra verða málstofur þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að þróun tölvu-, upplýsingatækni og miðlun í skólastarfi einnig verður boðið upp á smiðjur þar sem ráðstefnugestum gefst tækifæri til að sjá og kynnast hvernig hægt er að nota og jafnvel prófa verkfæri sem tengjast tölvu- og upplýsingatækni.
Frestur til að senda inn lýsingu á erindi eða smiðju að hámarki 200 orð er til 15. janúar 2016.
Hér má senda inn ágrip (ath. að tengillinn fer á vef miðstöðvar skólaþróunar)
Nánari upplýsingar veita Hólmfríður Árnadóttir, 460 8571, netfang: hoa@unak.is og Sólveig Zophoníasdóttir, 460 8564, netfang: sz@unak.is.