„Mér finnst þetta í einu orði sagt alveg frábært námskeið, mjög vel staðið að því og haldið utan um það. Ég hef fengið meiri áhuga á því hvernig hægt er að efla lestraráhuga meðal nemenda. Ég mæli hiklaust með þessu námskeiði“.
Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, námssamfélög þeirra og teymi í að efla námssamfélag um lestur og lestraráhuga. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að styðja kennara og skólasafnskennara við að byggja upp jákvæð og hvetjandi lestrarsamfélög í skólum. Sjónum verður beint að því hvernig fyrirmyndir og aðstæður í umhverfi nemenda hafa mótandi áhrif á viðhorf til lestrar innan sem utan skóla. Fjallað verður um leiðir til að efla áhuga og dýpka upplifun af lestri og hvernig nýta má lestur sem kveikju að samræðum og félagslegum samskiptum. Þátttakendur fá leiðsögn við að nýta stafræn verkfæri til að efla löngun og möguleika nemenda til lestrar. Lögð verður áhersla á að þátttakendur á námskeiðinu fái innblástur og hugmyndir að því hvernig gera megi lestur sýnilegri og eftirsóknarverðari í augum nemenda og alls lestrarsamfélagsins.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að nýta þróunarhring (sjá mynd neðar) í fjórum skrefum, sem styður við samtal um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru stigin í skólanum, á milli kennslulota í Menntafléttunni:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teyminu sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymið þeirra framkvæmir og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendurnir brugðust við.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur
- leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í grunnskólum.
- skipulagt kennslu og námsumhverfi sem ýtir undir lestraráhuga og virkni allra nemenda.
- nýtt lestur sem kveikju að samræðum og félagslegum samskiptum.
- nýtt stafræna möguleika til að styðja við áhuga og möguleika allra nemenda til lesturs og náms.
Fyrir hverja er námskeiðið og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar?
Námskeiðið er fyrir kennara og skólasafnskennara í grunnskólum. Reynslan hefur sýnt fram á að farsælt sé að fleiri en einn þátttakandi sé frá hverjum skóla, en það er þó ekki skilyrði.
Eindregið er hvatt til þess að þátttakendur séu í samráði við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu. Með því eru stjórnendur meðvitaðir um og samábyrgir um að styðja við þróun námssamfélaga innan sinna stofnana. Hér er myndband myndband sem lýsir mikilvægu hlutverki stjórnenda sem eiga þátttakendur á Menntafléttunámskeiðum og hér er texti sem lýsir þeim skilyrðum sem verða að vera til staðar í skóla þar sem námssamfélög kennara blómstra.
Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?
Kennslan fer fram í sex lotum á vef Menntafléttu á þeim tíma sem hentar þátttakendum sjálfum. Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í grunnskólum þátttakenda í samtali teyma um þróun náms og kennslu. Þátttakendur fá hagnýtar kveikjur í lotunum sem þeir geta fléttað saman við daglegt starf, þeir leiða svo samtal á teymisfundum um hvernig gengur.
Þróunarhringurinn
Þróunarhringurinn er úr smiðju Skolverket í Svíþjóð og nýttur með góðfúslegu leyfi.
Umsjón og kennsla
Anna Sigrún Rafnsdóttir grunnskólakennnari og sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og dósent við Háskólann á Akureyri, Jónella Sigurjónsdóttir, skólasafnskennari í Selásskóla, Kristján Ketill Stefánsson, verkefnastjóri á Menntavísindastofnun og Ragnar Þór Pétursson, grunnskólakennari og fráfarandi formaður Kennarasambands Íslands.
„Það verður að hjálpa þeim [börnunum] yfir þetta fjall sem virðist stoppa þau í að lesa. Og það verður ekki gert nema skólasamfélagið og samfélagið allt sé áhugasamt um lestur, barnabækur og að bæta lestrarvenjur barna.“
Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur og dósent
„Námskeiðið hefur verið frábært og sannarlega uppfyllt væntingar mínar þegar kemur að því að safna hugmyndum í sarpinn um að efla áhugahvöt nemenda á lestri“.
Hamingjusamur þátttakandi á námskeiðinu veturinn 2021–2022
„Í heimi stafrænnar síbylju er bóklestur frábært afdrep sem veitt getur mikla ánægju.“
Ragnar Þór PéturssonGrunnskólakennari og fráfarandi formaður Kennarasambands Íslands
Previous
Nextve
Í hnotskurn
- Lotur 0
- Quizzes 0
- Lotur: 6x3 klst.
- Hefst: All levels
- Gjöld: 0
- Gjöld: Mismunandi