Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, þeirra námssamfélög og teymi við að efla íslenskunám og kennslu. Kennurum verða færð verkfæri til að virkja sköpunarkraft og eðlislæga forvitni nemenda gagnvart tungumálinu, með áherslu á að nýta þau námsgögn sem kennurum standa til boða. Í námskeiðinu verður hugmyndafræði lýsandi málfræði höfð að leiðarljósi samhliða forskriftarmálfræði. Fjallað verður um hagnýtar leiðir til að draga fram meðvitund nemenda um eigin málkunnáttu og málnotkun sem og hvernig nota megi tungumálið og viðeigandi málsnið á fjölbreytilegan hátt eftir aðstæðum í ræðu og riti. Námskeiðinu er ætlað að styrkja kennara í að gera nemendur að ábyrgum málnotendum sem vilja nota tungumálið á öllum sviðum lýðræðissamfélags í samræmi við hæfni- og matsviðmið aðalnámskrár.
Skráningarfrestur er t.o.m. 26. ágúst.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að nýta þróunarhring (sjá mynd neðar) í fjórum skrefum, sem styður við samtal um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru stigin í skólanum, á milli kennslulota í Menntafléttunni:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teyminu sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymið þeirra framkvæmir og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendurnir brugðust við.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur
- leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum sem kenna í 7.–10. bekk grunnskóla.
- eflt hæfni sína í að fjalla um íslenskt mál og málfræði á nýstárlegan hátt.
- leitt þróun í málfræðikennslu, verkefnagerð og nýtingu kennslugagna.
- unnið með námskrá og námsgögn á sjálfstæðan hátt.
Fyrir hverja er námskeiðið og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar?
Námskeiðið er fyrir kennara sem kenna íslensku í 7.–10. bekk og hafa áhuga á þróun námssamfélags innan síns skóla með áherslu á íslenskukennslu. Reynslan hefur sýnt fram á að farsælt sé að fleiri en einn þátttakandi sé frá hverjum skóla en það er þó ekki skilyrði.
Eindregið er hvatt til þess að þátttakendur sammælist við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu. Með því eru stjórnendur meðvitaðir um og samábyrgir um að styðja við þróun námssamfélaga innan sinna stofnana. Hér er myndband sem lýsir mikilvægu hlutverki stjórnenda sem eiga þátttakendur á Menntafléttunámskeiðum og hér er texti sem lýsir þeim skilyrðum sem verða að vera til staðar í skóla þar sem námssamfélög kennara blómstra.
Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?
Kennslan fer fram rafrænt í sex lotum, þrjár klukkustundir að lengd, skólaárið 2022-2023. Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í grunnskólum þátttakenda í samtali teyma um þróun náms og kennslu. Þátttakendur fá hagnýtar kveikjur í lotunum sem þeir – og teymin þeirra geta fléttað saman við daglegt starf. Þátttakendur leiða samtal á teymisfundum um hvernig gengur. Í upphafi hverrar kennslulotu er farið yfir reynslu þátttakenda af því að nýta þróunarhringinn frá síðustu lotu (sjá mynd af þróunarhring hér neðar).
Dag- og tímasetningar lota
2022
Mánudagur, 5. september kl. 14.00–17.00
Mánudagur, 17. október kl. 14.00–17.00
Fimmtudagur, 24. nóvember kl. 14.00–17.00
2023
Mánudagur, 9. janúar kl. 14.00–17.00
Mánudagur, 13. mars kl. 14.00–17.00
Mánudagur, 17. apríl kl. 14.00–17.00
Þróunarhringurinn
Þróunarhringurinn er úr smiðju Skolverket í Svíþjóð og nýttur með góðfúslegu leyfi.