„Það hefur verið mjög gott að fara út fyrir þægindarammann og fá fleiri verkfæri og hugmyndir til þess. Mig hefur lengi langað að þróa verkefnin mín þannig að þau verði nemendamiðaðri og þetta námskeið hefur hjálpað til með það. Ég kem til með að nýta mér þetta áfram í minni kennslu og miðla við samkennara minna.“
Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, námssamfélög þeirra og teymi í kennslu náttúrufræði kennslu. Þátttakendur fá hugmyndir og verkfæri til að vinna með tungumál og þróun þekkingar barna á öllum stigum grunnskóla með náttúruvísindi í brennidepli. Þátttakendur munu kynnast leiðum til að vinna með áhuga og forvitni nemenda í náttúrufræði og hvernig gera má kennsluna nemendamiðaðri. Þátttakendur fá fjölbreyttar bjargir m.a. til að kynnast áhuga nemenda sinna og fyrir tilraunir auk þess sem við skoðum námsmat, m.a. sóknarkvarða og mikilvægi þeirra.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að nýta þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samtal um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru stigin í skólanum, á milli kennslulota í Menntafléttunni:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teyminu sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymið þeirra framkvæmir og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendurnir brugðust við.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur
- leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í skólum.
- beitt ólíkum aðferðum við að kanna áhugasvið og forþekkingu nemenda um fyrirbæri, hugtök og vísindalega aðferðafræði.
- greint eigin markmið og aðstæður í kennslu og sett í samhengi við kennslufræðilegar stefnur.
- nýtt fjölbreyttar gerðir verkefna til kennslu náttúrufræðigreina í samhengi við áhugasvið og forþekkingu nemenda
- valið leiðir til þess að kenna nemendum að stýra námi sínu með einhverjum hætti.
- leitað í nýútvíkkað tengslanet sitt m.t.t. verkefna og vinnu þvert á skóla.
Fyrir hverja er námskeiðið og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar?
Námskeiðið er fyrir alla kennara grunnskólans frá 1.-10. bekk sem sinna einhverri náttúrufræðikennslu og hafa áhuga á þróun námssamfélags innan sinna skóla með áherslu á náttúruvísindi og verklegar æfingar.
Reynslan hefur sýnt fram á að farsælt sé að fleiri en einn þátttakandi sé frá hverjum skóla en ef það er ekki möguleiki er hvatt til þess að þátttakendur finni samstarfsfélaga til að bera saman bækur við, innan sama sveitarfélags eða utan.
Eindregið er hvatt til þess að þátttakendur sammælist við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu. Með því eru stjórnendur meðvitaðir um og samábyrgir um að styðja við þróun námssamfélaga innan sinna stofnana. Hér er myndband sem lýsir mikilvægu hlutverki stjórnenda sem eiga þátttakendur á Menntafléttunámskeiðum og hér er texti sem lýsir þeim skilyrðum sem verða að vera til staðar í skóla þar sem námssamfélög kennara blómstra.
Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?
Námskeiðið fer fram í sex rafrænum lotum á heimasíðu Menntafléttu á þeim hraða sem hverjum þátttakenda hentar.
Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í skólum þátttakenda í samtali teyma um þróun náms og kennslu. Þátttakendur fá hagnýtar kveikjur í lotunum sem þeir geta fléttað saman við daglegt starf, þeir leiða svo samtal á teymisfundum um hvernig gengur.
Í upphafi hverrar kennslulotu er farið yfir reynslu þátttakenda af því að nýta þróunarhringinn frá síðustu lotu (sjá mynd af þróunarhringnum neðar).
Þróunarhringurinn
Þróunarhringurinn er úr smiðju Skolverket í Svíþjóð og nýttur með góðfúslegu leyfi.
Umsjón og kennsla
Hildur Arna Håkansson verkefnastjóri starfsþróunar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Margrét Hugadóttir, leiðtogi þekkingamiðlunar og fræðslu í Elliðaárstöð Orkuveitu Reykjavíkur.
„Áhugasviðsverkefni eru frábær leið í nemendamiðuðu námi – þar sem nemendur ráða hvaða viðfangsefnum þau gerast sérfræðingar í.“
Hildur Arna HåkanssonGrunnskólakennari og kennari námskeiðsins
Í hnotskurn
- Lotur 0
- Quizzes 0
- Lotur: 6x3 klst.
- Hefst: All levels
- Gjöld: 0
- Gjöld: Mismunandi