Markmið námskeiðsins er að styðja þátttakendur við að verða leiðtogar í sínum leikskóla og leiða samstarfsfólk sitt við að efla faglegt námssamfélag með umræðum um stærðfræðinám barnanna. Hér má sjá þriggja mínútna myndband um námskeiðið.
Þátttakendur kynnast sex grunnþáttum um þróun stærðfræðiskilnings sem Alan J. Bishop setur fram og kynnast sérstaklega þáttunum leikur og útskýringar barna. Þar að auki er farið vel í mikilvægi skráninga og hvernig þær styðja við áframhaldandi stærðfræðinám barna í leikskóla.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur
- Gegnt hlutverki leiðtoga og leitt námssamfélög jafningja í eigin leikskóla með samtali, endurgjöf og ígrundun um breytta starfshætti
- Nýtt lesefni og hugmyndir að viðfangsefnum tengdum stærðfræðinámi með samstarfsfólki og börnum
- Leitt vinnu samstarfsfólks við skráningar á vinnu barna á fjölbreyttan hátt
- Stutt samstarfsfólk við að skoða leik og útskýringar barna með stærðfræðigleraugum
Fyrir hverja er námskeiðið og hvernig fer skráning fram?
Námskeiðið er fyrir leikskólakennara. Mælt er með því að hver leikskóli sendi 1-2 kennara á námskeiðið.
Hvatt er til þess að þátttakendur sammælist um skráningu við sína stjórnendur. Þannig er tryggður nauðsynlegur stuðningur við viðfangsefni námskeiðsins og þróun námssamfélags á hverjum stað.
Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?
Námskeiðið er kennt í sex lotum á vef Mennafléttu á þeim tíma sem hentar þátttakendum hverju sinni. Á milli lota vinna þátttakendur með hagnýtar kveikjur námskeiðsins í hópi samstarfsfólks og flétta þannig viðfangsefnin við daglegt starf. Leiðtogar halda að jafnaði tvo vinnufundi með samstarfsfólki á milli lota.
Námskeiðið byggir á sænskri fyrirmynd, með góðfúslegu leyfi Skolverket.
Þróunarhringurinn
Á milli lota styðjast leiðtogar við þessi fjögur skref þróunarhrings, með samkennurum. Þróunarhringurinn er úr smiðju Skolverket í Svíþjóð og nýttur með góðfúslegu leyfi.
Umsjón og kennsla
Jónína Vala Kristinsdóttir, dósent í stærðfræðimenntun og Margrét S. Björnsdóttir, aðjunkt, báðar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Valdís Ingimarsdóttir, leikskólakennari.
„Fræðandi og hvetjandi námskeið sem ýtir við manni að vera til staðar og fylgjast með því sem gerist í leik barnanna“.
Þátttakandi á tilraunanámskeiði Menntafléttunnar um stærðfræðina í leik barna
„Ég horfi allt öðrum augum á starf með börnunum, hlusta betur á þau og gef þeim meiri tíma til þess að útskýra og leita lausna.“
Þátttakandi á tilraunanámskeiði um stærðfræðina í leik barna
„Ég veit nú að stærðfræði með leikskólabörnum er ekki bara + og –, eða sitja á stól og reikna á blaði“.
Þátttakandi á tilraunanámskeiði um stærðfræðina í leik barna
Previous
Next
Í hnotskurn
- Lotur 0
- Quizzes 0
- Lotur: 6x3 klst.
- Hefst: All levels
- Gjöld: 0
- Gjöld: Mismunandi