„Mjög gott námskeið sem gefur okkur ótal verkfæri til að vinna með í tengslum við málörvun. Ég hlakka alltaf til næstu kennslulotu“
Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, þeirra námssamfélög og teymi við að efla gæðamálörvun í leikskóla. Farið verður yfir hvernig börn læra málið og mikilvægi málþroskans fyrir nám og líðan barna. Þátttakendur fá hagnýt verkfæri til að fylgjast með og efla málþroska barna. Gæðamálörvun verður höfð að leiðarljósi og kynntar verða fjölbreyttar aðferðir til að nýta í daglegu starfi með börnum í gegn um leik og lestur.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að nýta þróunarhring (sjá mynd neðar) í fjórum skrefum, sem styður við samtal um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru stigin í leikskólanum, á milli kennslulota í Menntafléttunni:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teyminu sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymið þeirra framkvæmir og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendurnir brugðust við.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur
- leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í skólum og á vinnustöðum.
- haft yfirsýn yfir þróun máls og helstu frávik í málþroska.
- nýtt fjölbreyttar aðferðir við eflingu málþroska í daglegu starfi með börnum.
- verið leiðandi varðandi markmiðasetningu og áætlanagerð um málörvun innan leikskólans.
Fyrir hverja er námskeiðið og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar?
Námskeiðið er fyrir þá sem hafa áhuga á að leiða málræktarstarf í leikskólum. Reynslan hefur sýnt fram á að farsælt sé að fleiri en einn þátttakandi sé frá hverjum leikskóla en það er þó ekki skilyrði.
Eindregið er hvatt til þess að þátttakendur séu í samráði við við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu. Með því eru stjórnendur meðvitaðir um og samábyrgir um að styðja við þróun námssamfélaga innan sinna stofnana. Hér er myndband sem lýsir mikilvægu hlutverki stjórnenda sem eiga þátttakendur á Menntafléttunámskeiðum og hér er texti sem lýsir þeim skilyrðum sem verða að vera til staðar í skóla þar sem námssamfélög kennara blómstra.
Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?
Kennslan fer fram í sex rafrænum lotum á heimasíðu Menntafléttu. Hægt er að fara í loturnar á þeim tíma sem hentar hverjum þátttakenda fyrir sig. Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í leikskólum þátttakenda í samtali teyma um þróun náms og kennslu. Þátttakendur fá hagnýtar kveikjur í lotunum sem þeir geta fléttað saman við daglegt starf, þeir leiða svo samtal á teymisfundum um hvernig gengur.
Umsjón og kennsla
Bryndís Guðlaugsdóttir, leikskólakennari og ráðgjafi hjá Miðju máls og læsis, Íris Hrönn Kristjánsdóttir, leikskólakennari og sérfræðingur hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Jóhanna Thelma Einarsdóttir, dósent í talmeinafræði við Menntavísindasvið og Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, Þóra Sæunn Úlfsdóttir, talmeinafræðingur og ráðgjafi hjá Miðju máls og læsis.
Þróunarhringurinn
Þróunarhringurinn er úr smiðju Skolverket í Svíþjóð og nýttur með góðfúslegu leyfi.
„Mikilvægi málörvunar í leikskóla er óumdeilt og ætti að jafna möguleika barna og gefa öllum tækifæri til að ná góðum tökum á íslenskunni“.
Jóhanna Thelma EinarsdóttirDósent í talmeinafræði
Í hnotskurn
- Lotur 0
- Quizzes 0
- Lotur: 6x3 klst.
- Hefst: All levels
- Gjöld: 0
- Gjöld: Mismunandi