Markmið námskeiðsins eru að styrkja leiðtoga í leikskólastarfi til að leiða hóp samkennara og samstarfsfólks í námssamfélagi. Viðfangsefni námskeiðsins eru vísindasmiðjur með leikskólabörnum yngri en þriggja ára. Á námskeiðinu læra kennarar að tengja leik, sköpun og vísindi saman á áhugaverðan og skemmtilegan hátt þar sem leikur, forvitni og rannsóknargleði barna er höfð í forgrunni. Á námskeiðinu er jafnframt fjallað um mikilvægi ljósmynda/myndbanda til að skrásetja og ígrunda leik barna.
Á námskeiðinu er ætlunin að taka fyrir nokkra þætti, farið verður í hvernig hægt er að vinna með opinn efnivið og tengja m.a. við ljós og skugga, kúlubrautir og byggingaleiki þá verður fjallað um að vinna jarðleir með yngstu börnunum.
Skráningarfrestur er t.o.m. 26. ágúst.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að nýta þróunarhring (sjá mynd neðar) í fjórum skrefum, sem styður við samtal um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru stigin í skólanum, á milli kennslulota í Menntafléttunni:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teyminu sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymið þeirra framkvæmir og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendurnir brugðust við.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur
- leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í skólum og á vinnustöðum.
- skipulagt leik með það að markmiði að sérstaklega sé verið að huga að samþættingu skapandi starfs og náttúruvísinda við byggja upp forþekkingu barna.
- séð möguleika ýmis konar efniviðs .
Fyrir hverja er námskeiðið og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar?
Námskeiðið er fyrir þá sem hafa áhuga á að leiða skapandi starf tengt náttúruvísindum og sköpun fyrir yngstu börnin í leikskólanum.
Eindregið er hvatt til þess að þátttakendur séu í samráði við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu. Með því eru stjórnendur meðvitaðir um og samábyrgir um að styðja við þróun námssamfélaga innan sinna stofnana. Hér er myndband sem lýsir mikilvægu hlutverki stjórnenda sem eiga þátttakendur á Menntafléttunámskeiðum og hér er texti sem lýsir þeim skilyrðum sem verða að vera til staðar í skóla þar sem námssamfélög kennara blómstra.
Athugið! Til að geta tekið þátt í námskeiðinu þarf ákveðinn grunnefniviður að vera til staðar í leikskólanum:
- Ljósaborð, spotlampar.
- Myndvarpar og skjávarpar eru kostur.
- Efniviður er tengist byggingarleikjum.
- Mismunandi skábrautir sem tengjast kúlubrautum.
- Jarðleir.
Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?
Kennslan fer fram í sex lotum á ZOOM, þrjár klukkustundir að lengd, skólaárið 2022-2023. Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í leikskólum þátttakenda í samtali teyma um þróun náms og kennslu. Þátttakendur fá hagnýtar kveikjur í lotunum sem þeir – og teymin þeirra geta fléttað saman við daglegt starf. Þátttakendur leiða samtal á teymisfundum um hvernig gengur. Í upphafi hverrar kennslulotu er farið yfir reynslu þátttakenda af því að nýta þróunarhringinn frá síðustu lotu.
Dag- og tímasetningar lota
2022
Fimmtudagur, 29. september kl. 9.00-12.00
Fimmtudagur, 10. nóvember kl. 9.00-12.00
Fimmtudagur, 8. desember kl. 9.00-12.00
2023
Fimmtudagur, 26. janúar kl. 9.00-12.00
Fimmtudagur, 9. mars kl. 9.00-12.00
Fimmtudagur, 4. maí kl. 9.00-12.00
Stjórnendur þurfa að tryggja leiðtogum svigrúm til að vinna með samstarfsfólki að starfsþróun innan leikskólans.
Umsjón og kennsla
Kristín Dýrfjörð, leikskólakennari og dósent við Háskólann á Akureyri og Íris Hrönn Kristinsdóttir, leikskólakennari og sérfræðingur hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Þróunarhringurinn
Þróunarhringurinn er sóttur í smiðju Skolverket í Svíþjóð og nýttur með góðfúslegu leyfi.