Vettvangur starfsfólks
í skóla- og frístundastarfi
Á vef Menntamiðjunnar er miðlað starfsþróun sem sprettur upp úr grasrót faghópa í menntakerfinu en einnig formlegri starfsþróun sem opinberir- og einkaðilar bjóða upp á.
Ekkert eiginlegt efni er á síðunni heldur er einungis vísað í tengla hjá öðrum aðilum.
Hérna getur allir sent inn ábendingar um námskeið, viðburði ofl. sem gæti átt heima hér.
Næstu viðburðir og námskeið
30. sep
Menntafléttan – Áskoranir í skólastarfi: Hegðun og samskipti
Námskeiðinu er skipt upp í þrjá hluta og samanstendur hver hluti af tveimur lotum: Samskipti - Lausnahringurinn - forvarnir í daglegum samskiptum Erfið og krefjandi hegðun barna og unglinga - Hvað er til ráða? Ofbeldishegðun og hegðunarvandi innan skólakerfisins
30. sep
Námskeið og viðburðir #4918
Hvernig getum við skipulagt öfluga náttúruvísindakennslu sem vekur áhuga ungmenna og styður dýpri skilning? Á námskeiðinu verður sjónum beint að kennsluaðferðum sem skila árangri á unglingastigi Unnið er nú að uppsetning námskeiðs - Nánari lýsing kemur síðar. Hefst í sept. en dagsetning gæti breyst
1. okt
Menntafléttan – Deildarstjórinn sem faglegur leiðtogi í leikskólastarfi
Markmið námskeiðsins er að styðja deildarstjóra í leikskólum við að efla hæfni sína sem faglegur leiðtogi. Námskeiðið er hagnýtt og sniðið að þörfum starfandi deildarstjóra og taka umfjöllunarefni mið af daglegum viðfangsefnum leikskólans.








