Pælt í PISA – Lesskilningur og félags- og tilfinningaleg líðan nemenda
Haustið 2026 verða haldnar þrjár málstofur á vegum MVS HÍ Íslands þar sem kafað verður dýpra í niðurstöður PISA 2025. 10. nóvember kl. 14:00-15:30: Lesskilningur og félags- og tilfinningaleg líðan nemenda. Helga Birgisdóttir lektor og Kristján Ketill Stefánsson dósent.
Afhending Íslensku menntaverðlaunanna 2026 á Bessastöðum.
Íslensku menntaverðlaunin verða veitt á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.
Sérstök áhersla verður lögð á hvernig rannsóknargögn ÍÆ hafa nýst sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum við stefnumótun og forgangsröðun farsældarþjónustu fyrir börn og ungt fólk.
Menntaflétta – Náttúruvísindi sem virka á unglingastigi
Hvernig getum við skipulagt öfluga náttúruvísindakennslu sem vekur áhuga ungmenna og styður dýpri skilning? Á námskeiðinu verður sjónum beint að kennsluaðferðum sem skila árangri á unglingastigi. Nánari lýsing kemur síðar. Hefst í sept. en dagsetning gæti breyst
Hvernig verða rannsóknir að tækifærum og þekking að verðmætum fyrir samfélagið? Á rannsóknarþinginu Úr vísindum vaxa tækifæri deila doktorsnemar, fræðafólk og starfsfólk Háskólans á Akureyri rannsóknum, nýsköpun og hugmyndum sem hafa áhrif út fyrir veggi háskólans. Þingið er öllum opið
Menntafléttan – Náttúruvísindi sem virka á miðstigi
Hvernig kveikjum við áhuga barna á náttúruvísindum og byggjum upp traustan skilning? Á námskeiðinu kynnumst við kennsluaðferðum sem skila árangri á miðstigi. Unnið er nú að uppsetning námskeiðs - Nánari lýsing kemur síðar. Hefst í sept. en dagsetning gæti breyst
Á þessu hagnýta námskeiði lærir þú leiðir til þess að gera samverustundir í leikskóla eins skemmtilegar og lærdómsríkar og hægt er, svo öll börn geti notið sín. Fer fram í rauntíma á ZOOM
Á námskeiðinu læra kennarar að nýta gervigreindarverkfærið Claude á markvissan hátt í daglegu starfi. Farið er yfir grunnatriði, svo sem uppsetningu, stillingar og hvernig best er að orða fyrirmæli (e. prompts) þannig að útkoman nýtist í raun og veru í kennslustofunni.
Umsóknarfrestur – Styrkir til sveitarfélaga í þágu farsældar barna
MRN auglýsir eftir umsóknum sveitarfélaga um styrki til verkefna sem stuðla að farsæld barna, bættri þjónustu og aukinni velferð barna, meðal annars á sviði skóla- og frístundastarfs, forvarna, samfélagslegrar þátttöku, ráðgjafar og stuðnings við börn og fjölskyldur þeirra. Ums.fr. til 13. okt.
CAT-kassinn og CAT-vefappið.Námskeið í SMIÐJUKOTI, Einholti 12, 105 Reykjavík föstudaginn 9. október 2026, kl. 9:00-15:30CAT kassinn er verkfærakista til nota í samræðum við börn, ungmenni og fullorðna um upplifanir þeirra, hugsanir og tilfinningar.Kennarar:Ásgerður Ólafsdóttir ogSigrún Hjarta
Gemini Academy er fræðsluerindi fyrir kennara um hagnýta notkun gervigreindarverkfæra Google, Gemini og Notebook, í kennslu og daglegu starfi.Sýnd verða hagnýt dæmi og hugmyndir um hvernig hægt er að nota verkfærin til að einfalda ýmis verkefni, styðja við undirbúning kennslu, vinna með efni...
Alþjóðlegi kennaradagurinn er haldinn hátíðlegur 5. október ár hvert. Þessi dagur er notaður til að beina sjónum að mikilvægi kennarastarfsins, heiðra kennara og fagna framlagi þeirra til menntunar og samfélagsins.
Íslenski málhljóðamælirinn er byltingarkennd og nýstárleg lausn í skimunartækni í spjaldtölvu (iPad) sem ætlað er fagaðilum leik- og grunnskóla og stofnana.
Menntafléttan – Deildarstjórinn sem faglegur leiðtogi í leikskólastarfi
Markmið námskeiðsins er að styðja deildarstjóra í leikskólum við að efla hæfni sína sem faglegur leiðtogi. Námskeiðið er hagnýtt og sniðið að þörfum starfandi deildarstjóra og taka umfjöllunarefni mið af daglegum viðfangsefnum leikskólans.
Menntakvika, árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, verður haldin í Sögu, nýju húsi Menntavísindasviðs, miðvikudag og fimmtudag, 30. september – 1. október 2026.
Menntafléttan – Áskoranir í skólastarfi: Hegðun og samskipti
Námskeiðinu er skipt upp í þrjá hluta og samanstendur hver hluti af tveimur lotum: Samskipti - Lausnahringurinn - forvarnir í daglegum samskiptum Erfið og krefjandi hegðun barna og unglinga - Hvað er til ráða? Ofbeldishegðun og hegðunarvandi innan skólakerfisins
Hvernig getum við skipulagt öfluga náttúruvísindakennslu sem vekur áhuga ungmenna og styður dýpri skilning? Á námskeiðinu verður sjónum beint að kennsluaðferðum sem skila árangri á unglingastigi Unnið er nú að uppsetning námskeiðs - Nánari lýsing kemur síðar. Hefst í sept. en dagsetning gæti breyst
Í þessari vinnusmiðju fyrir leikskólakennara í Reykjavík er rætt um hatursorðræðu, rasisma, fordóma og hvernig við getum stuðlað að inngildandi skóla- og frístundastarfi.
Í þessu erindi/vinnustofu fyrir kennara í Reykjavík verður fjallað um samræðumiðaða kennslu og hvernig gæði bekkjarsamræðna geta skapað aukin námstækifæri fyrir nemendur.
Á málþinginu beinist athyglin að börnum með taugaþroskafrávik, þar á meðal ADHD, einhverfu, lesblindu, Tourette og DLD, hóp sem talinn er vera 15-20% barna.
Vísindavaka er sannkölluð uppskeruhátíð, vísindanna á Íslandi, þar sem gestir kynna sér vísindin á lifandi hátt og eiga í beinu samtali við rannsakendur og vísindafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum í íslensku vísindasamfélagi.
Á þinginu koma saman ungt fólk, fulltrúar vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda til að ræða hvernig þekking, vísindi og nýsköpun geta stuðlað að lausnum á áskorunum framtíðarinnar.
Málþing meistaranema á Menntavísindasviði verður haldið þriðjudaginn 22. september 2026. Málþingið er haldið í janúar, maí og september ár hvert, þar sem meistaranemar kynna lokaverkefni sín.
Á námskeiðinu, sem er fyrir starfsfólk leikskóla sem hefur annað móðurmál en íslensku, verður fléttað saman fagtengdri íslenskukennslu og 8 fjölbreyttum þemum úr leikskólastarfi. Námskeiðið byggir á samtali þátttakenda, uppbyggingu tengslanets og samstarfi þátttakenda og mentora innan leikskólanna.
Innleiðing STEAM námsskrá Grænuvalla: Að gera STEM hugsun sýnilega í leik, sköpun og daglegu starfi leikskólabarna
Í þessari vefstofu fáum við að heyra frá reynslu Leikskólans Grænuvalla af innleiðingu STEAM í námsskrá og daglegt starf leikskólans. Fjallað verður um hvernig STEM hugsun verður sýnileg í leik, sköpun og námi barna.
Vinnustofa fyrir kennara í Reykjavík. Vilt þú nýta þér tilbúnar kennslustundir í stafrænni borgaravitund sem hjálpa nemendum að ræða skjátíma, samfélagsmiðla, netöryggi og samskipti á netinu?
Á námskeiðinu verður fjallað um fjóra þætti læsis: lestur, ritun, talað mál og hlustun. Megin áhersla verður á lestrarkennsluaðferðir, mat á árangri og hvernig við nýtum niðurstöður mælinga til að taka ákvarðanir um áframhaldandi kennslu.
Markmið námskeiðsins er að styðja við kennara og efla hæfni þeirra í ritunarkennslu og leiðsagnarnámi með Ritunarrammanum. Námskeiðið er hagnýtt og sniðið að þörfum starfandi kennara og tekur umfjöllunarefnið mið af daglegum viðfangsefnum skólans.
Á námskeiðinu verður fjallað um fjóra þætti læsis: lestur, hlustun, talað mál og ritun. Skoðað verður hvaða grunn að læsi leikskólinn veitir, hvernig mat á læsi fer fram í leikskólum og hvernig grunnskólinn getur nýtt sér það mat sem grunn að skipulagi á námi og kennslu í upphafi lestrarnámsins.
Ævar Aðalsteinsson, verkefnastjóri Miðstöðvar útivistar og útináms, kynnir fjölbreytt skógarefni og hvernig hægt er að nýta náttúrulegan efnivið í leik og starfi. Fyrir starfsfólk hjá Reykjavíkurborg
PISA könnunin var lögð fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla á Íslandi 2025 á vegum MRN. Hópur fræðafólks við Menntavísindasvið HÍ og Háskólann á Akureyri hefur greint niðurstöður og skrifað kafla í skýrsluna og mun kynna helstu niðurstöður á fundinum.
Samræðufélagar fyrir 12 – 18 ára nemendur (Talking Partners @secondary) Á Akureyri
Tveggja daga námskeið um aðferðina (sem er 10 vikna íhlutun) ásamt eftirfylgd. Áhersla er lögð á samræður í 10 vikna lotu með þrjá nemendur í senn. Hentar vel fyrir sérkennara og ÍSAT kennara.
Í þessari vefstofu skoðum við af hverju STEM skiptir máli fyrir öll börn og ungmenni, ekki aðeins þau sem stefna í tækninám. Fjallað verður um STEM í samhengi við framtíðarfærni, lausnaleit, gagnrýna hugsun og samfélag örra breytinga.
Samræðufélagar fyrir 5 – 12 ára nemendur (Talking Partners@primary) á Akureyri
Tveggja daga námskeið um aðferðina (sem er 10 vikna íhlutun) ásamt eftirfylgd. Áhersla er lögð á samræður í 10 vikna lotu með þrjá nemendur í senn. Hentar vel fyrir sérkennara og ÍSAT kennara.
Samræðufélagar fyrir 12 – 18 ára nemendur (Talking Partners@secondary) í Reykjavík
Tveggja daga námskeið um aðferðina (sem er 10 vikna íhlutun) ásamt eftirfylgd. Áhersla er lögð á samræður í 10 vikna lotum með þrjá nemendur í senn.Hentar vel fyrir sérkennara og ÍSAT kennara.
Samræðufélagar fyrir 5 – 12 ára nemendur (Talking Partners@primary) í Reykjavík
Tveggja daga námskeið um aðferðina (sem er 10 vikna íhlutun) ásamt eftirfylgd. Áhersla er lögð á samræður í 10 vikna lotu með þrjá nemendur í senn. Hentar vel fyrir sérkennara og ÍSAT kennara.
Graphogame er smáforrit sem hjálpar börnum og fullorðnum að læra undirstöðuatriði í lestri á íslensku. Forritið var upphaflega hannað af finnskum læsisfræðingum með þarfir lesblindra í huga.
Fræðsluerindið fjallar um mikilvægi svefns fyrir heilsu og líðan barna og fullorðinna, með áherslu á hlutverk svefns í þroska, námi og daglegri virkni unglinga.
Í erindinu verður fjallað stuttlega um mikilvægi samræðu nemenda í námi og muninn á samræðu til náms og hversdagslegu samtali. Sýndar verða nokkrar einfaldar leiðir til að hefja samræðuþjálfun í bekk.
Evolytes námskerfið býður upp á skemmtilega leið til að læra og þjálfa stærðfræði. Námsefnið samanstendur af námsbókum, námsleik og upplýsingakerfi sem vinna öll saman sem ein heild.
Þverfagleg samvinna. Viltu vera öflugur brúarsmiður og efla þig í starfi?
Vinnustofan fjallar um þátt stjórnenda í að stuðla að þverfaglegu samstarfi í þjónustu við börn og fjölskyldur og hvernig slíkt samstarf getur styrkt samfellu, skilning og árangur í stuðningi.
Hagnýtar leiðir og hugtök í kennslu fjöltyngdra nemenda
Markmið erindis er að lýsa og gefa hagnýt dæmi um tvær kennsluaðferðir sem henta fjöltyngdum nemendum í íslenskum skólum en þær gefa þeim tækifæri til að nýta sér allar tungumálaauðlindir sínar.
Þessi grunnfræðsla er ætluð öllu starfsfólki grunnskóla og fjallar um ADHD og áhrif þess á nám, hegðun og samskipti. Rætt er um hagnýtar leiðir og ráð sem nýtast til að gera skólaumhverfið betra.
MMS og MML bjóða upp á fræðslufund fyrir kennara og skólastjórnendur um niðurstöður stöðu- og framvinduprófa Matsferils, þar sem farið verður yfir notkun niðurstaðna í skólastarf.
Fjallað er um ýmis hagnýt atriði sem styðja við gott upphaf skólagöngu nýrra nemenda á Íslandi. Hvað þarf að gera áður en barnið byrjar í skólanum? Hvað þarf að gera með bekknum?
Í stærðfræði má efla sköpun í gegnum þrautir, mynstur, umræður, leik, verklega vinnu og leiðsagnarnám. Erindið getur stutt skóla og starfsfólk þeirra til þess að efla stærðfræðilega sköpun.
Í stærðfræði má efla sköpun í gegnum þrautir, mynstur, umræður, leik, verklega vinnu og leiðsagnarnám. Erindið getur stutt skóla og starfsfólk þeirra til þess að efla stærðfræðilega sköpun.
ynnt verða hagnýt dæmi og ráð um notkun Gemini-gervigreindar í Google-skólaumhverfi (s.s. Canvas, Gems og NotebookLM). Einnig verður innleiðingarverkefnið Gervigreindir grunnskólar í Reykjavík kynnt.
Get ég orðið að liði? Betri Borg fyrir börn og farsæld barna í Reykjavík
Rætt verður um þann stuðning, ráðgjöf og úrræði sem starfsfólk í skóla- og frístundastarfi hefur aðgang að innan sinnar stofnunar, og samstarf hennar við miðstöð og barnavernd.
Verkefni sem reyna á reiknihugsun fyrir nemendur á yngsta, miðstigi og unglingastigi
Í þessu fræðsluerindi verða kynnt verkefni sem krefjast ekki tölvubúnaðar en reyna á reiknihugsun og henta nemendum á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi.
Verður heimurinn betri – hnattræn borgaravitund sem lifandi kennslufræði
Námskeiðið fjallar um hvernig efla má hnattræna borgaravitund nemenda með áherslu á tengsl, ábyrgð og virka þátttöku. Kynntar eru kennslufræðilegar nálganir og hagnýt verkfæri út.
Í erindinu er fjallað um neysluhyggju og sjálfbærni og hvernig þekking á textílhráefnum og færni í textílaðferðum geti haft áhrif á hringrásarkerfið og komið í veg fyrir fatasóun.
Google Workspace for Education Plus – kynning á nýjum verkfærum í Reykjavík
Nýjustu verkfæri GWfE verða kynnt; Vids í myndvinnslu, Gemini gerivgreindin og Class Tools sem nýtist í bekkjarstjórnun. Farið verður yfir helstu möguleika þeirra í kerfi Reykjavíkur.
Í þessu erindi verður kynntur kenningarammi TIMSS í náttúruvísindum fyrir könnunina í 5. bekk og fjallað um hann í ljósi aðalnámskrár grunnskóla og fyrirliggjandi námsefnis í náttúruvísindum fyrir yng
„Heiti potturinn“ er þróunarverkefni í tveimur grunnskólum í Reykjavík og hluti af stoðþjónustu. Hvernig er hægt að þróa inngildandi stoðþjónustu sem rúmar þarfir nemenda?
Vinnustofa um ATLAS.ti er ætluð doktorsnemum en áhugafólk um eigindlegar rannsóknaraðferðir er einnig velkomið. ATLAS.ti er hugbúnaður sem nýtist við greiningu eigindlegra gagna, svo sem viðtala, ritaðs efnis, mynda og annarra rannsóknargagna.
Á þessu málþingi beinist athyglin að börnum með taugaþroskafrávik — þar á meðal ADHD, einhverfu, lesblindu, Tourette og DLD.Markmið málþingsins er að efla skilning og fara yfir hagnýtar leiðir sem styðja við þessi börn í því umhverfi sem þau lifa og hrærast mest í