Sérstök áhersla verður lögð á hvernig rannsóknargögn ÍÆ hafa nýst sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum við stefnumótun og forgangsröðun farsældarþjónustu fyrir börn og ungt fólk.
Hvernig verða rannsóknir að tækifærum og þekking að verðmætum fyrir samfélagið? Á rannsóknarþinginu Úr vísindum vaxa tækifæri deila doktorsnemar, fræðafólk og starfsfólk Háskólans á Akureyri rannsóknum, nýsköpun og hugmyndum sem hafa áhrif út fyrir veggi háskólans. Þingið er öllum opið
Alþjóðlegi kennaradagurinn er haldinn hátíðlegur 5. október ár hvert. Þessi dagur er notaður til að beina sjónum að mikilvægi kennarastarfsins, heiðra kennara og fagna framlagi þeirra til menntunar og samfélagsins.
Menntakvika, árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, verður haldin í Sögu, nýju húsi Menntavísindasviðs, miðvikudag og fimmtudag, 30. september – 1. október 2026.
Vísindavaka er sannkölluð uppskeruhátíð, vísindanna á Íslandi, þar sem gestir kynna sér vísindin á lifandi hátt og eiga í beinu samtali við rannsakendur og vísindafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum í íslensku vísindasamfélagi.
Á þinginu koma saman ungt fólk, fulltrúar vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda til að ræða hvernig þekking, vísindi og nýsköpun geta stuðlað að lausnum á áskorunum framtíðarinnar.
Málþing meistaranema á Menntavísindasviði verður haldið þriðjudaginn 22. september 2026. Málþingið er haldið í janúar, maí og september ár hvert, þar sem meistaranemar kynna lokaverkefni sín.
PISA könnunin var lögð fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla á Íslandi 2025 á vegum MRN. Hópur fræðafólks við Menntavísindasvið HÍ og Háskólann á Akureyri hefur greint niðurstöður og skrifað kafla í skýrsluna og mun kynna helstu niðurstöður á fundinum.
Á þessu málþingi beinist athyglin að börnum með taugaþroskafrávik — þar á meðal ADHD, einhverfu, lesblindu, Tourette og DLD.Markmið málþingsins er að efla skilning og fara yfir hagnýtar leiðir sem styðja við þessi börn í því umhverfi sem þau lifa og hrærast mest í