„Menntamiðja er táknræn fyrir það góða samstarf sem einkennir skólasamfélagið okkar og það er mikill fengur að því að dýrmætar upplýsingar, fróðleikur og miðlun eigi sér nú stað í gegnum einn samstarfsvettvang á vefnum.“
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra 2021
Hvert er markmið Menntamiðju?
Markmið Menntamiðju er að vera gátt að starfsþróun kennara, stjórnenda og annars starfsfólks í menntakerfinu. Á vef okkar er miðlað óformlegri stafsþróun sem sprettur upp úr grasrót faghópa í menntakerfinu, sem og formlegri starfsþróun af hálfu eigenda Menntamiðju.
Á Menntamiðju er miðlað upplýsingum um styrki og sjóði, viðburði og rannsóknir sem erindi eiga við menntakerfið og hagsmunaaðila.
Menntamiðjan er vettvangur fyrir samstarf um þróunarstarf og nýsköpun. Ritstjórn Menntamiðju tekur afstöðu til efnis sem miðlað er á Menntamiðju.
Sagan okkar
Menntamiðja spratt upp árið 2012 sem samstarfsvettvangur stofnana og hópa innan skólasamfélagsins. Menntamiðjan gegndi því hlutverki að vera umgjörð samstarfsfélaga þar sem framsækin grasrótarverkefni blómstruðu. Fjölbreytt torg héldu utan um ólík viðfangsefni kennara og skólafólks og Menntamiðja stóð fyrir viðburðum, deildi þekkingu, var brú milli fræða og framkvæmda og skóp samfélag um skólastarf.
Tæpum áratug síðar taka níu hagaðilar höndum saman um endurnýjaða Menntamiðju, sem hvílir á traustum grunni.
Hafa samband
Viltu vekja athygli á þínu starfssamfélagi?
Stýrihópur og ritstjórn Menntamiðju eru skipuð fulltrúum allra eigenda Menntamiðju. Ritstjórn tekur afstöðu til efnis sem miðlað er á vefnum.