Starfsþróun

Starfsþróun getur verið óformleg og formleg en megintilgangur hennar og markmið er að efla færni og þekkingu og auka gæði í starfi. Hér finnur þú ýmis konar starfsþróunartilboð og námskeið sem eru ætluð starfsfólki í skóla- og frístundastarfi.

Næstu námskeið

11. maí

Fagnámskeið 1 fyrir starfsfólk leikskóla

Námið er ætlað þeim sem vinna á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhald

26. maí

Gagnrýnin hugsun í framhaldsskólum

Á þessu námskeiði er ætlunin að ræða um gagnrýna hugsun í samhengi við áskoranir samtímans.

8. jún

Fagnámskeið 2 fyrir starfsfólk leikskóla

Námið er ætlað þeim sem vinna á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhald

Ýmis starfsþróunarnámskeið

NýMennt á Menntavísindasviði HÍ Nýmennt heldur utan um ýmsa starfsþróun, svo sem Menntafléttuna og Menntahleðslur. Skólar og sveitarfélög geta haft samband og fengið sérhönnuð námskeið sem henta þeim. 

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri býður upp á fjölbreytt námskeið fyrir kennara, ýmist einingabær eða ekki.

Opni Listaháskólinn býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða á sviði listkennslu og kennslu með aðferðum lista og sköpunar.

Endurmenntun Háskóla Íslands og Símenntun Háskólans á Akureyri brúa bilið á milli hefðbundinnar háskólamenntunar og símenntunar. Í boði eru einstök námskeið og lengri námsleiðir.

Á vef Menntastefnu Reykjavíkurborgar má nálgast mikið af efni sem tengist starfsþróun.

Viltu vekja athygli á þínu starfssamfélagi?

Stýrihópur og ritstjórn Menntamiðju eru skipuð fulltrúum allra eigenda Menntamiðju. Ritstjórn tekur afstöðu til efnis sem miðlað er á vefnum.